|
20.03.2008 20:09:12 / sævar
Jæja ég er nú búinn að vera frekar latur við að blogga. En ég var að setja inn myndir frá því að við fórum í veiðiferð um daginn. Þið finnið þær undir myndasöfn. Kv. Sævar
»
27.01.2008 21:21:37 / sævar
Jæja þá er maður komin úr sólinni í snjóinn og helvítis bræluna á sjónum. Fórum á sjó í gærmorgun og náðum að taka þrjú hol en þá voru komnin 30 metra vindhraði svo við komum í land í morgun og förum á miðnætti í kvöld aftur.En það var alveg svaka fínt á kanakí þó var nú ekki mikil sól en góður hiti og slöppuðum við bara mjög vel af þessa viku sem við vorum þar,jæja nenni ekki meiru í bili kv Sævar.
»
03.01.2008 21:11:24 / sævar
Gleðilegt ár gott fólk og takk fyrir það gamla til þeirra sem ég þekki. Eg ætti að vera á sjó núna en rétt áður en við áttum að fara á sjó á miðnætti 1.jan kom eitthver fjandinn fyrir vélina í dallinum og er hún nú í viðgerð þá er bara að nota tíman að dunda sér í bílskúrnum sem við byggðum við gamla skúrin í haust við stækkuðum hann um 30 fermetra og náðum við að klára það bara sjálf meðan skipið var í slipp er bara að ganga frá inni og skipurleggja skúrinn upp á nýtt. Rjúpnavertíðinn ein svo lélegasta sem ég hef upplifað náði aðeins 3 rjúpum það var alltaf vitlaust veður þegar ég var í landi. Við áhöfnin erum að fara til kanarí 16.jan í eina viku og erum farin að hlakka mikið til að komast í smá sól. Jæjja læt þetta næga í bili reyni að blogga oftar á nýja árinu kveðja Sævar
»
25.05.2007 22:10:56 / sævar
Jæja það er víst best að blogga aðeins.Ég kom í frí á miðvikudaginn
og verð í fríi fram yfir sjómannadag,ég sé að ég hef haft algerlega
rangt fyrir mér þegar ég hjelt að vorið væri komið hér um daginn
því það er svo kalt þessa daganna að það heitasta helvíti eins og
eitthver hefði nú sagt í minni sveit þegar maður var ungur.Talandi
um mans góðu átthaga þá ættlaði ég nú norður í morgun vegurinn var
ófær vegna snjóa svo ég fer á morgun og ætla pabbi og mamma líka
norður. Við ætlum að taka frá gluggum og tengja vatnið og gera
klárt fyrir sumarið ef það skildi nú koma eitthverntíman sem maður
vonast nú til.Jæja læt þetta nægja að
sinni kv Sævar
»
05.05.2007 10:07:58 / sævar
Jæja ég kom í land í gærmorgun eftir að hafa verið á sjó í rúma
viku.Það var vægast sagt ótrúlegt fiskrí,og lönduðum við fjórum
sinnum á þeim tíma í Þorlákshöfn Hafnarfirði og að sýðustu í
Grundarfirði í gær og eru þetta samanlagt tæp 200 tonn,en það voru
engin frí á milli túra svo menn eru ansi handleggjalangir eftir
þessa skemtilegu törn og því gott vera nokkra daga í landi.Það var
mikill munur að líta á landið eftir þessa viku allt að verða grænt
og garðablóm farinn að spretta og tréinn líka svo ég held að
sumarið sé komið þó það sé frekar kalt í dag og verði víst í nokkra
daga, við Ella ætlum að skuttlast í höfuðborgina í dag svona
til gamans ég ætla á veiðisýningu sem er víst í Smáralindinni og
sjá hvort það sé eitthvað atiglisvert að sjá þar,jæja gott að sinni
kv Sævar
»
24.04.2007 15:52:41 / sævar
Jæja það er orðið langt síðan ég bullaði hér síðast.Við vorum á
Kanarý um páskana í sól og sælu, og var það nú aldeilis gott,en það
skigði dálítið á ferðina að Sólveig skar sig á glerbroti í sundlaug
hótelsins sem við vorum á og þurfti að sauma 3 spor í fótinn á
henni.Ég er búinn að fara tvo túra á sjóinn síðan við komum að utan
og var fullfermi í báðum veiðiferðunum,en síðasti túr var nokkuð
strembinn því við fengum 55 tonn á einum og hálfum sólahring af ýsu
en hún var frekar smá og því seinunnin.Ég fer í frí í næstu viku og
ætlum við hjónin að sækja nýtt fellshýsi suður til Reykjavíkur og
fara á veiðisýningu sem er í Smáranum 5-6 maí. Jæja gott í bili kv
Sævar
»
30.03.2007 14:50:38 / sævar
Jæja lognið er vægast sagt er flíta sér og það kemur að sunnan og
er á leiðinni norður á strandir sem er mjög skiljanlegt, því það
voru 20 metrar af sunna hér um hádegið svo það er mikið fart á
logninu.Ég er komin í hálfs mánaðar frí eftir mánaðar róðrartörn.
Mér hefur tekist að lækna mig af kvefinu að mestu leiti með meðulum
sem maður fær ekki hjá lækni heldur þarf maður vist háan aldur til
að kaupa slík gæðalif.Við Birgir og Samúel fórum á vélsleðunum hér
upp á nesið í gær og var það nú aldeilis hressandi ferð þó að
súrefnið sé ekki eins mikið hér og fyrir norðan eins og allir vita
er loftið heilnæmara norður á ströndum heldur en annars staðar á
jörðinni.kv Sævar
»
22.03.2007 13:44:09 / sævar
Jæja ég kom í land á þriðjudagsmorgun, og vorum með fullt skip af
mjög góðum fiski eða mikið af aflanum var mjög stór þorskur stór
ýsa.Varðandi veðrið þá á síðasta blogg mitt alveg príðilega
við veðrið þessa daganna.Ég veit ekki hvenær eg fer á sjó næst það
er ekki ákveðið enn vegna veðurs.Það komu alveg heljar miklir
snjóskaflar við húsið og í garðinn hjá okkur í sunnanrokinu á
þriðjudaginn en þá fór vindurinn upp í 4o metra á sek.Jæja vonandi
fer nú að vora fljótlega upp úr þessu.Ég hef einhversstaðar náð mér
í alveg sérstaklega veglegt kvef sem gerir það að verkum bragð
og rödd mín virka ekki sem skildi,og er því eins gott að geta
bara notað tölvu til að þusa aðeins. Gott að sinni kv Sævar
»
14.03.2007 19:00:22 / sævar
Það er best að bulla aðeins.Ég kom í land í gærkvöld eftir alveg
einstakan brælutúr og var maður ansi lúin, svo það var gott að koma
heim og hvíla sig aðeins.Afli var tregur enda ekki nema von vegna
áðurnefndrar brælu, svo bilaði hjá okkur og þurftum við að fara inn
í Keflavík og láta laga það sem bilaði.Ég fer á sjó á morgun og
vonast ég eftir því að veðurguðinn verði aðeins spakari í næstu
viku og fari að dúlla sér við eitthvað annað búa til brjálað rok
alla daga. En maður segir bara,það vill til að maður hefur gaman af
þessu.kv Sævar
»
08.03.2007 14:58:07 / sævar
Ég ætti að vera farin á sjó,en það bilaði hjá okkur þegar við
vorum að fara í gærkvöld svo við fórum bara heim að sofa.Það er
búist við að það komist í lag eitthverntíman í dag.Ég kom í
land í fyrrakvöld eftir frekar leiðinlegan túr það var lélegt
fiskirí og leiðinlegt veður mest allan tíman.Við Birgir og Samúel
sonur Birgis fórum aðeins út á fjörð í gær svona til að
atuga hvort það væri ekki eitthver kvikindi til að veiða okkur voru
til aðstoðar tveir félagar mínir af sjónum þeir Óli Siggi og
Einar.Við náðum nokkrum kvikindum sem bættust við matarforðan.Var
hugsa um að fara á sleðanum í dag en nennti því ekki það er svo
lélegt færi alltof lítill snjór.Læt þetta nægja að sinni kv
Sævar
»
26.02.2007 19:36:45 / sævar
Jæja ég er í fríi þessa
dagana.Kom í land á fimmtudag, við lönduðum um 90
tonnum í síðustu viku.Það var mjög gott veður í dag og
notuðum við bræðurnir blíðuna til að hreifa bátinn aðeins.Helgi
vinur okkar kom vestur með veiðigræjur svo okkur var ekkert að
vanbúnaði að halda á veiðar.Sigldum við á haf út og veiddum við
bara vel af ýmisskonar villibráð sem mun bragðast vel við góð
tækifæri.Það var mjög gaman að fá félaga okkar hann Helga í
heimsókn og fara á veiðar saman, við þurfum að gera þetta
oftar.Ég fer líklega á sjó á miðvikudag eða fimmtudag,vonandi
ekki fyrr en á fimmtudag. læt þetta nægja í bili kv
Sævar
»
15.02.2007 13:51:50 / sævar
Jæja það er best segja nokkur orð. Ég er frekar latur að blogga
þegar ég er á sjónum,það eru svo stutt stopp á milli túra svo ég
nenni ekki að setjast við tölvuna en nú er undantekning.Það er búið
að vera gott fiskirí sýðan við komum frá Cubu.Við vorum með um 100
tonn á 6 dögum í 2 löndunum sem þykir mjög gott,en ég er að fara á
sjó kl 3 í dag.Ég ætla í frí í næstu viku og verð í fríi í
viku, maður verður að hvíla sig aðeins á þessu öðru hvoru svo
maður verði ekki bara vitlaus á sjómenskunni.Jæja látum gott heita
að sinni.
»
29.01.2007 20:13:50 / sævar
Jæja þá er best að blogga aðeins.Við komum frá Kúpu fyrir viku
síðan,þessi ferð var alveg frábær, um 30 gráðu hiti upp á hvern dag
og nóg um að vera sér til dægrastittingar svo sem að fljúga á
gúmmíbát um loftin blá eða sigla skútum ef manni datt það í hug nú
eða bara fá sér Kúpa líbra eða Takiri drikk en það er nóg romm í
báðum þessum eðaldrykkjum Við fórum á alveg frábæran útimarmað og
voru gerð góð kaup alskins góðu dóti svo sem tréstittum og skrauti
ímisskonar. Svo fórum við nokkrir karlar á sjóstöng ég veiddi eina
Barrakúdu og var það bara skemtilegt að veiða eitthvað annað en
þorsk eða ýsu.Við snorkuðum líka sem var mjög skemmtilegt.Ég set
kanski nokkrar mindir inn seinna.Áfram Kúpa því hún er frábær fyrir
ferðamenn .
»
01.01.2007 19:50:23 / sævar
Jæja þá gamla árið liðið.Við hér á bæ lukum því með tilheirandi
veisluhöldum og flugeldaskotum og líka tertusprengingum heima hjá
Unni systir en þar var öll fjölskildan komin saman til að kveðja
gamla árið og fagna því nýja en Bryndís systir komst ekki.Það var
alveg sérstaklega gaman hjá okkur enda fjölkildan orðinn nokkuð
stór.Ég fer á sjó kl 24 í kvöld og er þá sælan í bili þar til við
förum til Cubu. jæja gott að sinni kv Sævar.
»
24.12.2006 16:43:03 / sævar
Jæja þá er maður að komast í jólagírinn,
við borðuðum skötu heima hjá mömmu og pabba í gær öll
stórfjölskyldan sem er hér á staðnum ásamt Vigni og Páley.
Lognið hefur vægast sagt verið að færa sig hratt úr stað
síðustu daga hér í bæ brotnuðu tugir glugga , bæði í húsum og
bílum, einnig eitthver þök, klæðningar og grinverk sem fuku.
Ég fer á sjó á miðnætti annan í jólum, og verð fram að
áramótum. Það er farið að styttast í kúbuferðina okkar, hún
verður farin 14 janúar. Gott í bili, jólakveðja til þeirra
sem þetta lesa Sævar.
»
Síður: 1 2
|